Brauðbær sérhæfir sig í dönsku smurbrauði og pinnamat. 40 ára reynsla og fagmennska tryggir gæði veisluþjónustu okkar - vertu viss um að fá fyrsta flokks veitingar í veisluna þína. Smurbrauðsstofan Brauðbær á Hótel Óðinsvé hefur verið starfrækt allt frá árinu 1964. Brauðbær byggir á hinum hefðbundna danska smurbrauðsskóla Oskars Davidsen og Idu Davidsen í Kaupmannahöfn og hefur ávallt svarað kröfum tímans um nýbreytni og þjónustu. Brauðbær vinnur aðeins með það besta hráefni sem völ er á og hefur starfsfólk sem býr yfir mikilli hæfni.Hægt er að panta og sækja eða við sendum og leggst þá sendingakostnaður við pöntunina. Gott er að panta tímalega en það er mögulegt að fá afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir hádegi.Pöntunarsíminn er 552 0490 eða 511 6677, við getum einnig aðstoðað við val á snittum og veitt ráðgjöf fyrir veislur. Opið mánudaga til laugardaga frá kl.8-16